Persónuverndarstefna
Í gildi frá 18. febrúar 2026
Almennt
Persónuvernd þín skiptir Sporið ehf. miklu máli. Stefna þessi tekur til persónuupplýsinga hvort sem þeim er safnað og þær varðveittar með rafrænum hætti, á pappír eða með öðrum sambærilegum hætti. Sporið ehf. tekur hlutverki sínu alvarlega og leggur mikla áherslu á að varðveita persónuupplýsingar þínar í samræmi við lög og reglur. Með persónuverndarstefnu þessari viljum við gera þér grein fyrir því hvernig söfnun, geymsla og önnur vinnsla persónuupplýsinga er háttað hjá okkur. Sporið vinnur aðeins með persónuupplýsingarnar þínar í lögmætum tilgangi og ýmist samkvæmt lagaskyldu, með upplýstu samþykki þínu eða á grundvelli lögmætra hagsmuna.
Persónuverndarlöggjöf
Öll vinnsla Sporið á persónuupplýsingum fer fram á grundvelli laga nr. 90/2018, um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, sbr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679 um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga og um frjálsa miðlun slíkra upplýsinga. Ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinganna er Sporið ehf. og ber almennt ábyrgð á skráningu persónuupplýsinga og meðferð þeirra upplýsinga í starfsemi sinni.
Söfnun og notkun
Sporið ehf. er dýrapössunarþjónusta og safnar persónuupplýsingum sem nauðsynlegar eru til að veita þjónustu okkar. Við notum þessar upplýsingar til að hafa samband við þig, skipuleggja pössun og tryggja velferð dýrsins þíns.
Sporið ehf. safnar eftirfarandi persónuupplýsingum um viðskiptavini sína:
- Nafn
- Kennitala
- Netfang
- Símanúmer
- Heimilisfang
- Upplýsingar um dýr (nafn, tegund, aldur, heilsufar, sérþarfir)
- Bókunarsaga og samskiptasaga
Við notum persónuupplýsingar til þess að:
- Skipuleggja og veita dýrapössunarþjónustu
- Hafa samband við þig varðandi bókanir og þjónustu
- Senda reikninga og innheimta greiðslur
- Svara fyrirspurnum og bregðast við athugasemdum
- Senda upplýsingar um breytingar á þjónustu eða skilmálum
Verndun
Sporið ehf. leggur mikla áherslu á að vernda vel allar persónuupplýsingar og hefur innleitt viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar öryggisráðstafanir.
Sporið ehf. deilir ekki undir neinum kringumstæðum persónuupplýsingunum þínum til utanaðkomandi þriðja aðila og gerir þær aldrei opinberar, nema þegar nauðsynlegt er til að veita þjónustuna (t.d. til greiðslumiðlunar) eða ef félaginu berast lögmæt fyrirmæli frá opinberum yfirvöldum.
Öryggisbrot og tilkynningar
Ef öryggisbrot verður og persónuupplýsingar notenda komast í hendur óviðkomandi aðila, mun Sporið tilkynna slíkt án ótilhlýðilegrar tafar og í samræmi við GDPR. Ef brotið veldur verulegri áhættu fyrir notendur, munum við hafa beint samband við þá sem það varðar. Tilkynningar verða einnig sendar til viðeigandi eftirlitsstofnana, ef nauðsyn krefur.
Varðveisla og eyðing
Sporið varðveitir persónuupplýsingar svo lengi sem nauðsynlegt er til að veita þjónustu okkar og uppfylla lagaskyldur, svo sem varðandi bókhald og reikningagerð.
Ef þú hættir að nota þjónustu Sporið og gefur okkur skýr fyrirmæli um að eyða skuli upplýsingum þínum, munum við eyða öllum persónuupplýsingum án ótilhlýðilegrar tafar, að svo miklu leyti sem okkur er ekki skylt að halda eftir slíkum upplýsingum í bókhaldslegum tilgangi.
Réttindi þín
Þú átt rétt á og getur óskað eftir eftirfarandi með því að hafa samband við okkur:
- Að fá að vita hvaða persónuupplýsingar eru skráðar um þig og fá aðgang að þeim
- Að fá upplýsingar um hvernig persónuupplýsingar um þig séu unnar
- Að persónuupplýsingar um þig séu uppfærðar og leiðréttar
- Að persónuupplýsingum um þig sé eytt, ef ekki er lengur málefnaleg ástæða til að varðveita þær
- Að andmæla og/eða takmarka hvernig persónuupplýsingar séu unnar
- Að afturkalla samþykki þitt til vinnslu
Þú átt ávallt rétt á því að leggja fram kvörtun til Persónuverndar komi upp ágreiningur um meðferð persónuupplýsinga, en við myndum kunna að meta það ef þú gæfir okkur tækifæri fyrst til þess að leysa málið.
Samskipti
Ef þú hefur einhverjar spurningar um persónuverndarstefnu þessa eða meðferð persónuupplýsinga, hafðu samband við okkur á sporidmitt@sporidmitt.is
